{"product_id":"1-x-4580812709224-folio-ocean-blue-a5","title":"Folio: Ocean Blue [A5]","description":"\u003cp\u003eVið höfum hannað Techo bókahlíf sem nefnist „Folio“ sem vísar til þess að hún sé brotin í tvennt. Þetta er bókahlíf úr efni sem fer beint utan um Hobonichi Techo bókina. Þú einfaldlega setur fram og bakhlið bókarinnar inn í ermar bókahlífarinnar og þá er hún tilbúin til notkunar. Hún er þunn, létt og þægileg í hendi og hönnunin leggur áherslu á einfaldleika.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókahlífin er úr þykku og stífu bómullarefni sem hefur verið húðað með pólýúretani. Útkoman er mjúk viðkomu en um leið einstaklega endingargóð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁ vinstri erminni er einn kortavasi og með bókahlífinni fylgir eitt bókamerki. Hönnunin er meðvitað látlaus. Í stað innbyggðs pennahaldara fylgir Folio bókahlífinni sérstök teygja. Á leðurmerki úr náttúrulegu leðri, merkt „HANDWRITE“, er hægt að festa einn þykkari penna en teygjan getur haldið á grennri penna. Þannig þarftu ekki að hafa áhyggjur af því að Techo bókin opnist inni í töskunni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁberandi blái liturinn vekur hugrenningar um hafið. Á kjalinum stendur „YOU WRITE. YOU DRAW.“ ásamt mynd af seglskipi. Líkt og þegar maður siglir um lífið með eigin höndum geturðu opnað auða Techo bókina þína og leyft pennanum að ferðast frjálslega yfir síðuna.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003eÍ ár er hægt að kaupa eingöngu bókahlífina, sem hentar fyrir bækur í A5 stærð, eða kaupa hlífina með HOBONICHI TECHO Cousin!\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Hobonichi","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51258110607527,"sku":"HN61","price":8290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0425\/7854\/2759\/files\/cc27_folioblue_01.jpg?v=1787661038","url":"https:\/\/www.nakano.is\/products\/1-x-4580812709224-folio-ocean-blue-a5","provider":"Nakano ","version":"1.0","type":"link"}