Hobonichi
Colors: Black x Clear Blue (A5) - hentar fyrir Cousin
The Color Series býður upp fallegar einlitar hlífar. Hver bókahlíf er með pennahvílu og því auðvelt að loka bókinni þinni með því að festa pennann þar í. Í hverri hlíf eru vasar þar sem þú getur geymt allt það helsta sem þú vilt taka með þér í bókinni þinni.
Black x Clear Blue er fallega svört að utan en ljósblá að innan, sem skapar frískandi kontrast.
Black x Clear Blue hlífin er gerð úr polyester, og því er örlítill gljái. Hún er endingargóð og létt.
Í hverri hlíf eru tvö bókamerki, eitt í laginu eins og þríhyrningur og annað kassalaga, þú gætir til dæmis lagt eitt við mánaðarskipulagið og hitt við daglegu síðurnar.
Í ár er hægt að kaupa staka bókahlíf, sem hentar fyrir bækur í A5 stærð, eða kaupa hlífina með HOBONICHI TECHO Originial skipulagsbókinni!