{"product_id":"4-x-4580812710350-2027-japanese-original-book-a6-size-daily-jan-start-sun-start","title":"2027 Japanese Original Book [A6 size\/Daily\/Jan start\/Sun start]","description":"\u003cp\u003eHobonichi Techo Original er A6 Techo dagbók með einni síðu fyrir hvern dag, í sömu stærð og kilja. Þetta er hefðbundin útgáfa Hobonichi Techo og kemur nú út í 26. sinn frá fyrstu útgáfunni árið 2002. Daglegu síðurnar gefa gott pláss fyrir dagskrá, dagbókarfærslur og minnispunkta, auk þess sem hægt er að líma inn miða og ljósmyndir, teikna og margt fleira.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHönnun síðnanna er með 3,7 mm rúðum sem hefur verið þróuð og fínstillt í gegnum árin. Það hentar vel til að skrifa snyrtilega niður dagskrá og texta og hentar einnig þegar teikna á skýringarmyndir eða myndir.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEitt af einkennum Hobonichi Techo eru daglegu tilvitnanirnar. Á hverri daglegri síðu er ein vandlega valin tilvitnun af vefsíðu Hobonichi, sem gerir Techo dagbókina skemmtilega aflestrar jafnt sem til skrifta.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eOriginal er fáanleg með bæði mánudags- og sunnudagsbyrjun (þessi dagbók er með \u003cstrong\u003e\u003cspan style=\"text-decoration: underline;\"\u003esunnu\u003c\/span\u003e\u003cspan style=\"text-decoration: underline;\"\u003edagsbyrjun\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e). Textinn sem er prentaður á bókahlífina er grár í útgáfunni sem byrjar á mánudegi en rauður í útgáfunni sem byrjar á sunnudegi.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ctable height=\"717\" style=\"width: 124.441%;\"\u003e\n\u003cthead\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003cth style=\"width: 19.3043%;\"\u003eUpplýsingar\u003c\/th\u003e\n\u003cth style=\"width: 80.3478%;\"\u003eUpplýsingar um bókina\u003c\/th\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003c\/thead\u003e\n\u003ctbody\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003eStærð\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003eA6, H: 148 × B: 105 × Þ: 15 mm. Raunveruleg stærð bókarinnar getur verið örlítið frábrugðin\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003eÞyngd\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003eUm 195 g\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003eTungumál\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003eJapanska\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003eFjöldi síðna\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003e464 síður\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003ePappír \/ binding\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003eÞunnur og léttur Tomoe River pappír sem er sléttur og þægilegur að skrifa á \/ Þráðsaumuð binding\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003eStærð rúðustrikunar\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003e3,7 mm. Mánaðardagatal er 3,45 mm\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003eUpphaf viku\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003eMánudagur eða sunnudagur\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003eÁrsdagatöl\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003e2026, 2027 og 2028\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003eÁrsyfirlit\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003eDesember 2026 til mars 2028, 8 síður\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003eMánaðardagatal\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003eDesember 2026 til mars 2028, 32 síður\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003eDaglegar síður\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003e1. janúar til 31. desember 2027, 377 síður. Í upphafi hvers mánaðar er síða til að skipuleggja fram í tímann. Allar daglegar síður innihalda daglega tilvitnun. Lítið mánaðardagatal er neðst til hægri á hverri opnu. Í upphafi bókarinnar er einnig auð opna til frjálsra nota\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003eDaglegar tilvitnanir\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003eEin á dag, á japönsku\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003eVikulegar síður\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003eEru ekki í bókinni\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003eMinnissíður\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003e15 síður\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003eAuka síður\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003eStundatafla \/ Rúðustrikaðar síður \/ Favorites \/ My 100 \/ Setningar til að rjúfa ritstíflu \/ Gagnleg táknmálssambönd \/ Kort af Kanda og Jinbocho, hverfi Hobonichi \/ Árstíðaskipti \/ Viðbúnaður vegna neyðarástands \/ Umbreytingartafla \/ Hvernig má nýta Hobonichi sem best \/ Gjafir \/ Aldurstaﬂa \/ Heimilisföng \/ Persónulegar upplýsingar\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd style=\"width: 19.3043%;\"\u003eUpplýsingar á síðum\u003c\/td\u003e\n\u003ctd style=\"width: 80.3478%;\"\u003eDagur ársins \/ Vika ársins á mánaðardagatali \/ Gamla tungldagatalið \/ Rokuyo, hefðbundið japanskt tungl og sólardagatal á mánaðardagatali \/ Árstíðaskipti \/ Japanskir frídagar \/ Tunglfasar. Daglegar síður sýna alla tunglfasa en mánaðardagatölin aðeins fullt tungl og nýtt tungl\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003c\/tbody\u003e\n\u003c\/table\u003e","brand":"Hobonichi","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51261282386087,"sku":"HN197","price":6690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0425\/7854\/2759\/files\/d27_1_ob27_jan_s.jpg?v=1787748195","url":"https:\/\/www.nakano.is\/products\/4-x-4580812710350-2027-japanese-original-book-a6-size-daily-jan-start-sun-start","provider":"Nakano ","version":"1.0","type":"link"}