midori

Dagbók fyrir 3 ár - skrifað á hverjum degi (sægræn) - sérstök afmælisútgáfa

9.990 kr

Staldraðu við með þessari einstöku 3 ára dagbók frá Midori Japan. Í bókinni finnur þú hinn góða MD pappír sem er einstaklega mjúkt að skrifa á. Vandað hefur verið til verks og eru mörg smáatriði í bókinni sem munu koma þér skemmtilega á óvart. Þessi bók verður betri og betri með tímanum.

Margra ára dagbækurnar frá Midori hafa nú komið út í 10 ár og því er þessi bók sérstök afmælisútgáfa sem kemur í takmörkuðu upplagi. 

Bókin var sett saman af handverksmanni í Kyoto sem heldur uppi aldagamalli handverskhefð - Nishijin brocade vefnaði. Þessi fallega dagbók er því einstakt handverk.  

Þessi kemur í takmörkuðu upplagi hjá Nakano

Smáaletrið:

Notast er við MD PAPER í þessari bók - vandaðan japanskan pappír

Bókin er 366 blaðsíður

6mm línubil

Vandlega innbundin - 2 bókamerki


 

 

Við mælum með