midori
Dagbók fyrir 5 ár - skrifað á hverjum degi (blá) - sérstök afmælisútgáfa
Staldraðu við með þessari einstöku 5 ára dagbók frá Midori Japan. Í bókinni finnur þú hinn góða MD pappír sem er einstaklega mjúkt að skrifa á. Vandað hefur verið til verks og eru mörg smáatriði í bókinni sem munu koma þér skemmtilega á óvart. Þessi bók verður betri og betri með tímanum.
Margra ára dagbækurnar frá Midori hafa nú komið út í 10 ár og því er þessi bók sérstök afmælisútgáfa sem kemur í takmörkuðu upplagi.
Bókin var sett saman af handverksmanni í Kyoto sem heldur uppi aldagamalli handverskhefð - Nishijin brocade vefnaði. Þessi fallega dagbók er því einstakt handverk.
Þessi kemur í takmörkuðu upplagi hjá Nakano
Smáaletrið:
Notast er við MD PAPER í þessari bók - vandaðan japanskan pappír
Bókin er 366 blaðsíður
6mm línubil
Vandlega innbundin - 2 bókamerki