{"product_id":"jibun-techo-2027-first-kit-mini-blue","title":"Jibun Techo 2027 First Kit mini Blue","description":"\u003cp\u003eHandbók frá hönnuð af Sakuma, sem starfar hjá stóru auglýsingafyrirtæki, í þremur hlutum sem hægt er að nota í ólíkum tilgangi: fyrir árið, lífið og minnispunkta.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eJibun Techo er nefnd eftir japönsku orðunum fyrir „sjálf“ og „skipuleggjari“.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eJibun Techo-kerfið samanstendur af þremur bókum:\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eDagbókin „DIARY“.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e„LIFE“ fyrir persónulegar upplýsingar sem fylgja þér frá ári til árs, svo sem afmælisdaga, ársafmæli og mikilvæga atburði í lífinu.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e„IDEA“ sem er fyllt með auðum rúðustrikuðum síðum fyrir allt sem á ekki heima í hinum tveimur bókunum.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003eÞetta byrjendasett inniheldur allar þrjár bækurnar í mjúkri kápu PVC kápu sem verndar bækurnar. Á kápunni er stór pennahaldari og ýmsir vasar fyrir kort, miða og önnur smá pappírsgögn. Einnig fylgir undirlag \u003cem\u003e(pencil board)\u003c\/em\u003e.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEiginleikar DIARY\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eOfurþunnur 52 g\/m² Kokuyo THIN PAPER-pappír sem er einstaklega endingargóður, þolir blek og er sýrufrír.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eTveggja síðna uppsetning fyrir hverja viku ársins, frá fyrstu viku nóvember 2026 til fyrstu viku janúar 2028. Hver dagur er í lóðréttri uppsetningu með klukkustundum frá 0–24. Einnig er pláss til að skrá verkefnalista, veður, hvað þú borðaðir og hvernig þér leið þann dag.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eMánaðaryfirlit frá nóvember 2026 til mars 2028.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eFleiri hlutar, þar á meðal heimskort með tímabeltum, samgöngukort af Japan, ársáætlanir, töflur fyrir verkefnastjórnun og gátlistar fyrir bækur, kvikmyndir, loforð og ábendingar.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eTvö bókamerki.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003ch2\u003eAthugasemd\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003eBækurnar í Jibun Techo-kerfinu eru að mestu leyti á japönsku, en ekki er nauðsynlegt að kunna japönsku til að nota þær. Heiti kafla, mánuðir og dagar vikunnar eru öll á ensku.\u003c\/p\u003e","brand":"Kokuyo","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51355409416359,"sku":"FJM1L2-37","price":10090.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0425\/7854\/2759\/files\/NI-JFM1L2-27_01.jpg?v=1789738364","url":"https:\/\/www.nakano.is\/products\/jibun-techo-2027-first-kit-mini-blue","provider":"Nakano ","version":"1.0","type":"link"}