Kokuyo
Kokuyo Jibun Techo - First Kit Indigo 2024
Kokuyo Jibun Techo First Kit er byrjendapakki fyrir þau sem vilja tileinka sér þetta sniðuga skipulagskerfi frá Japan. Í pakkanum færðu þrjár bækur og hlíf með pennahaldi sem þú getur notað aftur og aftur. Bækurnar eru Life - þar sem þú geymir upplýsingar sem þú fylgja þér á milli ára, Diary - dagbók fyrir árið 2024 (sjá innihald fyrir neðan) og Idea - bók fyrir punkta og hugmyndir sem þú færð yfir daginn.
'Kokuyo Jibun Techo' dagbókin er ekki eingöngu hugsuð sem skipulagsbók fyrir eitt ár, heldur frekar sem bók sem fylgir þér lengur og er samansafn upplýsinga sem þú þarft á að halda. Bókin býður upp á síður til þess að halda utan um markmið, árangur og ýmislegt sem kemur á daginn.
'Jibun' þýðir mitt eigið eða mitt á japönsku og 'techo' þýðir skipulagsbók - þín eigin skipulagsbók. Bókin er ekki bara dagbók heldur líka ákveðin leið fyrir þig til að læra nýja hluti um sjálfa/n þig!
Á síðu Jibun Techo geturu skoðað hvernig hægt er að nota bókina á fjölda vegu
Innihald
Mánaðaryfirlit fyrir árið 2024 og fram í mars 2025
Vinnublað fyrir verkefnastjórnun fyrir mánuð (markmið, árangur, kostnaður) - yfirlit yfir 2 mánuði í senn á opnu
Vikuyfirlit með tímaskiptingu (24 tímar)
My dream 2024 / Draumarnir / Markmiðin mín fyrir árið 2024
Fjárhagsáætlun
Bækur & Kvikmydir (listi)
Gjafalisti (sem ég fékk og gaf)
Loforð (sem ég fékk og gaf)
Litið til baka yfir árið 2024
og margt fleira!
Praktískar upplýsingar
Bókin opnast alveg flöt - auðvelt að skrifa í hana!
Pappírinn er stífur, en mjúkt að skrifa á hann.
Blaðsíðurnar eru léttar svo auðvelt er að taka bókina hvert sem er
Þó að pappírinn sé þunnur þá sést ekki auðveldlega í gegn og pappírinn hreyfist minna þegar strokað er út
Hægt er að nálgast þýðingar og prentefni fyrir bókina hér.
STÆRÐ A5 SLIM (H217×W136mm)