{"product_id":"litabok-cozy-planner","title":"Coco Wyo Cozy Planner","description":"\u003cp\u003eNotaleg skipulagsbók sem býður upp á rólega stund með krúttlegum myndum. Bókin sameinar litabók með 52 vikna skipulag, svo auðveldara sé að finna jafnvægi í hversdeginum, skipuleggja tímann og njóta augnabliksins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ bókinni er að finna litamyndir til að slaka á og draga úr streitu, ársáætlun, mánaðar- og vikuyfirlit, lista yfir litlu gleðiefni hvers mánaðar, auðar síður fyrir glósur, dagbókarskrif og krúttlegar teikningar ásamt yfirliti til að líta yfir árið í lok þess. Einnig eru skemmtilegar skapandi hugmyndir, til dæmis að búa til lista yfir uppáhalds huggumyndir eða teikna hinn fullkomna strandardag.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHvort sem markmiðið er að skipuleggja vikuna, teikna draumana sína eða taka sér rólega pásu er bókin hugsuð sem notalegt rými fyrir sköpun, sjálfsrækt og slökun.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞað er engin rétt eða röng leið til að nota bókina. Það má fylla hverja einustu síðu eða hafa hana einfalda, teikna frjálslega eða skrifa aðeins nokkur orð um daginn. Bókin er persónulegt rými til að hægja á sér, hugsa og vera meira til staðar í augnablikinu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLitastíllinn er einfaldur og aðgengilegur, með þykkum útlínum og stórum opnum flötum sem auðvelt er að lita. Hún hentar því jafnt byrjendum sem reyndari liturum og er falleg gjöf fyrir unglinga, börn og alla sem hafa gaman af notalegum litabókum, skipulagi og krúttlegri afþreyingu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eAthugið: Ef notaðir eru tússpennar eða vatnslitir er gott að setja auðan pappír undir síðuna til að koma í veg fyrir að liturinn smitist yfir á næstu síðu.\u003c\/em\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Penguin Books","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51508621541543,"sku":"PEN016","price":5490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0425\/7854\/2759\/files\/71PJmgBhZlL._SL1500.jpg?v=1791906032","url":"https:\/\/www.nakano.is\/products\/litabok-cozy-planner","provider":"Nakano ","version":"1.0","type":"link"}