Skip to content

Cart

Your cart is empty

MD Notebook A7 Blank

Sale price1.590 kr

Einfaldleikinn ræður för í dásamlegri dagbókarlínu MD Paper

Minimalískar dagbækur fyrir þau sem njóta þess að skrifa á hágæða pappír. Japanski hönnunarfyrirtækið Midori hefur þróað dúnmjúkan pappír sem finna má í dagbókarlínunni MD Paper. Pappírinn hentar einstaklega vel fyrir penna og sérstaklega blekpenna, pappírinn tryggir að blekinu blæði hvorki á pappírnum né í gegnum pappírinn. 

Bækurnar eru eins og minimalískar og hægt er. En með tímanum eldist forsíðan og segir þína sögu. Hægt er að fá sérstakar hlífar fyrir þau sem vilja halda bókunum sínum eins og hvítum og þegar þær fyrst voru keyptar en við mælum með að sleppa því og sjá hvernig bókin ferðast og litast með notkun. Hver bók á sína sögu. 

Í þessari uppfærslu getur þú nú teiknað eða skrifað á forsíðuna á bókinni þinni.

Við eigum MD Paper bækurnar í tveimur pappírsgerðum, MD Paper (mjúku) sem henta einstaklega vel fyrir þá sem vilja skrifa og teikna með bleki, eða MD Paper Cotton bækurnar sem eru blandaðar með bómull sem gefur pappírnum hrjúfari áferð sem hentar einstaklega vel fyrir skissur.

Á síðu MD Paper má ná í ýmis sniðmát til að prenta út fyrir bækurnar 

Hannað og framleitt í Japan

Smáletrið

A7 stærð

H105×W74×D10mm

Um 168g 

176 blaðsíður

Glassine paper

Bookmark string / Label stickers / Thread-stitched book-binding

 

MD Notebook A7 Blank
MD Notebook A7 Blank Sale price1.590 kr