Skip to content

Cart

Your cart is empty

Litakvöld Nakano × Ohuhu

Viðburður hjá Nakano

Litakvöld Nakano × Ohuhu

Gefðu þér tíma til að skapa.

Taktu þér kærkomið hlé frá hversdagsleikanum og eigðu notalegt kvöld með okkur þar sem litagleði og góður félagsskapur verða í aðalhlutverki.

Sem umboðsaðili Ohuhu á Íslandi býður Nakano þér á sérstakt litakvöld þar sem þú færð tækifæri til að kynnast litríkum heimi Ohuhu og sækja innblástur til annarra með sama áhugamál.

Hvort sem þú ert að uppgötva litabækur í fyrsta sinn eða átt nú þegar gott safn af Ohuhu litum er þetta kvöld fyrir þig. Engin reynsla er nauðsynleg heldur snýst kvöldið einfaldlega um að njóta þess að skapa.

Taktu vinkonu með þér eða mættu ein og kynnstu nýju fólki sem deilir áhuga þínum á sköpun.

Aðgangseyrir: 2.000 kr. á mann.

Takmarkaður fjöldi plássa er í boði og því er nauðsynlegt að tryggja sér miða fyrirfram.

Greidd pöntun staðfestir skráningu þína á viðburðinn. Staðfesting berst í tölvupósti eftir kaup og gildir sem aðgöngumiði.

Við hlökkum til að eiga litríkt og notalegt kvöld með þér!

Nakano × Ohuhu