Skip to content

Cart

Your cart is empty

Cave Canem dagatal 2027

Sale price7,200 kr

A3 dagatal á óhúðuðum pappír með nýrri teikningu fyrir hvern mánuð, sem má klippa út og nota áfram. Merkt hátíðisdögum, jafndægrum, fullu tungli, Gvendardegi og fleiri góðum dögum.

Myndirnar urðu til í skemmtilegu samstarfi Ingibjargar Berglindar og Unnar Stellu (Start Studio) þar sem hvor teiknaði sig inn í heim hinnar, hnýtti sig inn í sögu sem var þegar hafin og hélt henni áfram á sinn hátt. Þannig blandaðist saman lita- og myndmál beggja, mánuð eftir mánuð, og úr því samtali spruttu litlir ævintýraheimar, sumir kunnuglegir, aðrir svolítið skrítnir, en allir skemmtilegir.

Cave Canem dagatal 2027
Cave Canem dagatal 2027 Sale price7,200 kr