Skip to content

Cart

Your cart is empty

Holbein Akrýl Gvass (Acrylic Gouache) 12 x 20ml túbur - Rebecca Green

Sale price12,990 kr

Rebecca Green er hæfileikaríkur myndskreytir með einstaka litapallettu. Í samstarfi við Holbein hefur hún sett saman litasett með sínum uppáhaldslitum.

Hér getur þú lesið um settið á vefsvæði Rebeccu Green ásamt smá texta um heimsókn hennar til Holbein verksmiðjunnar! 

Litir í setti:

  • Vermilion
  • Coral Red
  • Mustard
  • Emerald Green
  • Sap Green
  • Pale Aqua
  • Smalt Blue
  • Ash Yellow
  • Ash Blue
  • Burnt Sienna
  • Sepia
  • Gold

Holbein akrýl gvass (Acrylic Gouache) er þekjandi og litsterk akrýl gvassmálning sem þornar með mjúkri, mattri áferð. Hún er svipuð hefðbundinni gvassmálningu með arabísku gúmmíi hvað varðar notkun og blöndun, en þar sem bindiefnið er akrýlplastefni verður málningin vatnsþolin þegar hún hefur þornað. Hún þornar hratt og litirnir breytast lítið við þornun, þannig að liturinn sem þú sérð þegar málningin er blaut er nánast sá sami þegar hún hefur þornað.

Holbein akrýl gvass myndar sveigjanlegri yfirborðsfilmu en hefðbundin gvassmálning með arabísku gúmmíi og er því síður viðkvæm fyrir því að flagna eða skemmast. Málninguna má blanda saman við aðra akrýl málningu og hefðbundna gvassmálningu, auk vatnslita.

Holbein Akrýl Gvass (Acrylic Gouache) 12 x 20ml túbur - Rebecca Green
Holbein Akrýl Gvass (Acrylic Gouache) 12 x 20ml túbur - Rebecca Green Sale price12,990 kr