Skip to content

Cart

Your cart is empty

Holbein Akrýl Gvass (Acrylic Gouache) Master sett 12 litir x 20ml túbur

Sale price12.590 kr

Holbein Akrýl Gvass (Acrylic Gouache) – 12 lita sett með 20 ml túbum
Okkar uppáhalds akrýl‑gvass litir með mettaðum litum, silkimjúkir mattri áferð og einstakri vatnsheldni eftir að liturinn hefur þornað.

Hvað við elskum við þessa liti:

Frábærir fyrir byrjendur sem hafa aldrei heyrt um gvass eða akrýl gvass - fjölbreytt litaval og gott verð gerir þá aðgengilegri fyrir byrjendur - ekki vera hrædd/ur við að prófa!

Fjölbreytt litaval - vorum við búin að nefna að við elskum allt litaúrvalið!? Við hjá Nakano höfum valið okkar uppáhalds liti en ef þú vilt einhvern sérstakan tökum við við sérpöntuum! En sem stendur eru til um 107 litir

Enginn litabreyting: Það sem þú sérð blautt þornar eins og sá litur – samfelldur litur án litadreifingar sem auðveldar þér vinnuna.

"Velvet" matt áferð sem þornar snögglega og myndar vatnshelt og endingargott yfirborð

Passar vel við aðra "vatnsmiðla": Af okkar reynslu blandast litirnir vel við hefðbundið gvass, vatnsliti og akrýl liti - endilega prófaðu þig áfram!

Hentar fyrir:
Listamenn, hönnuði, myndskreytingafólk og áhugasama – fullkomið fyrir nákvæma línuvinnu, flóknar lagskiptingar, blandaða tækni og verk þar sem varanleg áferð skiptir máli.

---

Holbein Art Materials, OSAKA JAPAN

Holbein er virt japanskt myndlistarvörumerki, stofnað árið 1900 í Osaka, Japan, og dregur nafn sitt af þekktum evrópskum listmanni, Hans Holbein. Við kynntumst Holbein vörunum fyrst á vatnslitanámskeið í Tókýó og þá var ekki aftur snúið.

Allar vörurnar frá Holbein eru hannaðar með endingu, litstyrk og faglega frammistöðu í huga. Holbein framleiðir eingöngu listamannaflokks liti (artist quality)

Holbein Akrýl Gvass (Acrylic Gouache) Master sett 12 litir x 20ml túbur
Holbein Akrýl Gvass (Acrylic Gouache) Master sett 12 litir x 20ml túbur Sale price12.590 kr