Skip to content

Cart

Your cart is empty

Holbein gvass (Artists' Gouache) 5 x 15ml - Primary

Sale price5,190 kr

Litir í setti:

  • Primary Magenta
  • Primary Yellow
  • Primary Cyan
  • Primary Black
  • Primary White

Holbein gvass (Gouache) litirnir eru valdir fyrir einstaklega mikla litmettun og þann eiginleika að hægt sé að blanda þeim frjálslega saman án þess að tapa birtu, þekju eða litstyrk. Litavalið gefur áreiðanlega og samræmda útkomu, án þess að litirnir dökkni eða verði drungalegir við blöndun.

Litirnir renna ekki saman og mynda ekki sprungur og því veita þeir fullkomna þekju þegar þeir eru lagðir hver ofan á annan. Yfirborðið verður þó matt og viðkvæmt og því ætti að forðast að rispa eða nudda málninguna.

Holbein gvass má einnig blanda saman við gegnsæja vatnsliti frá Holbein, akrýl litum eða akrýl bleki sem hefur verið þynnt fyrir notkun í airbrush. Þetta er fagleg málningarvara sem uppfyllir kröfur kröfuharðra listamanna og hentar jafnframt einstaklega vel til kennslu í litafræði.

Holbein gvass (Artists' Gouache) 5 x 15ml - Primary
Holbein gvass (Artists' Gouache) 5 x 15ml - Primary Sale price5,190 kr