
Holbein vatnslitasett (Artists’ Watercolor) 16 x 5ml - Pearl Colors
Litir í setti:
- Pearl Silver
- Pearl Silver Red
- Pearl Silver Orange
- Pearl Silver Yellow
- Pearl Silver Green
- Pearl Silver Blue
- Pearl Silver Violet
- Pearl Silver Black
- Pearl Gold
- Pearl Gold Red
- Pearl Gold Orange
- Pearl Gold Yellow
- Pearl Gold Green
- Pearl Gold Blue
- Pearl Gold Violet
- Pearl Gold Black
Settið inniheldur 16 gegnsæja vatnsliti með perlukenndri áferð. Gegnsæ og hlutlaus litarefni í gylltum og silfurlituðum tónum gefa litunum glans og gera þá sérstaklega hentuga til að leggja í lög og blanda saman við aðra liti. Lita pallettan byggist á tveimur grunnlitum, gulli og silfri, með sjö litaafbrigðum af hvorum. Litirnir halda sínum fallega ljóma jafnvel þegar þeim er blandað saman.
Holbein vatnslitir (Artist Watercolor) eru vatnslitir þekktir fyrir einstök gæði og eru það einmitt litirnir sem hafa spilað stóran þátt í að byggja upp alþjóðlegt orðspor Holbeins. Málningin kom fyrst á markað snemma á þriðja áratug 20. aldar og er nú fáanleg í 108 litum. Hún er gegnsæ vatnslitamálning í evrópskum stíl sem varðveitir þá eiginleika við notkun sem einkenna japanska vatnslitatækni.
Litarefnin eru fín mulin og málningin er framleidd án uxagalls (ox-gall), sem er aukaafurð úr dýrum. Þetta gefur listamanninum meiri stjórn á dreifingu litarefnanna, bætir meðhöndlun málningarinnar og skilar einstaklega sterkum, hreinum og áreiðanlegum litum.
Holbein Artist Watercolor fæst í túpum, 5 ml og 15 ml, auk takmarkaðs úrvals í hálfpönnum. Málningin er sérstaklega hönnuð til að vætast aftur samstundis og heldur eiginleikum sínum án þess að rýrna í túpu, pönnu eða litapalettu.
Choose options
