




LEUCHTTURM1917 (A5) harðkápa línustrikuð - Olive
LEUCHTTURM1917 A5 bækurnar eru svokölluð miðstærð (A5), sem mælist 145×210 mm, sem er fullkomin stærð, nett en samt með nægu plássi fyrir hugmyndir og glósur þínar. Hvort sem þú ert nemandi, fagmanneskja, listamaður eða einfaldlega að leita að góðu rými til að festa niður hugmyndir þínar, þá eru þessar bækur traustur og fallegur félagi í hversdagslífinu.
Þessi bók er merkt með blaðsíðutölum og er efnisyfirlit (index) fremst til að merkja niður innihald bókarinnar. Aftast í bókinni er pappírsvasi þar sem má geyma allskonar eins og kvittanir eða límmiða! Með bókinni fylgir eitt límmiðaspjald með límmiðum sem eru hannaðir til þess að merkja bókina og því er hægt að skrifa á þeim.
LEUCHTTURM1917 bækurnar eru með hágæða þýskum pappír sem höndla marga miðla og eru í uppáhaldi hjá mörgum sem kjósa að skrifa með blekpennum.
Bækurnar fást í mörgum litum, stærðum og gerðum sem má sjá hér.
Þessi bók er línustrikuð
• Miðstærð (A5)
• Innbundin bók (hardcover)
• 145 x 210 mm
• 251 blaðsíður
• pappír (80 g/sm)
• 2 bókamerki
• Autt efnisyfirlit
• Vasi aftast
Athugið að blýantur á myndinni fylgir ekki með bókinni.
Choose options




