



Darumakisa (4cm)
Daruma er japönsk brúða með stór augu en án útlima. Daruma brúður eru oft búnar til úr pappamassa. Brúðan á að tákna búddamunkinn Bodhidharma sem á japönsku er kallaður daruma og þaðan kemur heiti brúðunnar. Brúðan er búin til án handa og fóta og vísar það til þess að munkurinn sat í níu ár fyrir framan klettavegg og hugleiddi.
Daruma brúða er talin verkfæri til að uppfylla óskir þannig að fyrst er annað auga brúðunnar litað og henni stillt upp á stað þar sem sá sem óskar fer framhjá á hverjum degi. Ef óskin rætist þá litast hitt augað líka og eftir það má brenna brúðuna í hofi.
Þessi kisudaruma er þó ekki með augu til að teikna á eins og hefðbundin daruma dúkka en hún mun líklega hjálpa þér að ræta drauma þína með krúttleika sínum.
Choose options



