










MD Notebook A5 Codex 1 Day 1 Page Blank
MD Notebook Codex bækurnar eru með codex-bindingu sem sýnir þráðsaumaðu kjölina og vegna bindiaðferðarinnar opnast bókin alveg flöt. Bókin er með 368 blaðsíður og er hönnuð til þess að endast út árið þar sem hægt er að skrifa eina blaðsíðu á dag.
Eins og aðrar MD Notebook bækur notar Codex útgáfan MD PAPER pappírinn sem hefur sannað sig sem góður kostur til að nota allskonar skriffæri og parast fullkomlega með lindarpennum. Ekki blæðir í gengum pappírinn en það sést þegar skrifað hefur verið á aðra síðu blaðsins sem nefnist ghosting á ensku. MD PAPER pappírinn er kremlitaður.
Codex bækurnar eru með línum staðsettar neðst á blaðsíðunni þar sem hægt er að skrifa dagsetningar. Ein blaðsíða á dag býður upp á ótal mögulega þar sem valið er algjörlega frjálst hvernig bókin er notuð.
Á síðu MD Paper má ná í ýmis sniðmát til að prenta út fyrir bækurnar
- Hannað og framleitt í Japan
- A5 stærð
- 368 blaðsíður
- H210×W148×D20mm
- Glassine Paper
- Bookmark string / Label stickers / Thread-stitched book-binding
Choose options










