Skip to content

Cart

Your cart is empty

MD Notebook Diary A5 Thin 2027

Sale price3,890 kr

Þessi dagbók, sem er byggð á „MD Notebook“, er fullkomin til að skrifa niður hugsanir og allt sem þarf að gera.
Hún er með einfaldri hönnun með mánaðarlegri áætlun í blokkum og rúðustrikuðum síðum. Bókin er með MD pappír sem hentar einstaklega vel fyrir notkun lindarpenna, og í raun hvaða penna sem er! Sumir viðskiptavinir okkar nota MD bækur sem skissubækur. 

Bókin er saumuð með þræði, sem gerir það að verkum að hún liggur alveg flöt.

Þessi útgáfa af MD PRODUCT er dagbók fyrir árið 2027. Fremst í bókinni er ársyfirliti, fyrir árið 2027 og 2028. Einnig eru mánuðir ársins 2027 settir snyrtilega upp rúðum. Restin af bókinni er með rúðustrikuðum blöðum. 

Bókin er rúðustrikuð með 5mm rúðum. Rúðurnar eru eins og í genko yoshi pappírnum sem er notuð til að skrifa í Japan og því eru bil á milli línanna og hver fimmta og tíunda lína er merkt svo að auðveldara sé að telja hversu marga stafi maður hefur skrifað. 

MD Notebook Diary A5 Thin 2027
MD Notebook Diary A5 Thin 2027 Sale price3,890 kr