Skip to content

Cart

Your cart is empty

MD Notebook Diary A6 2027

Sale price3,290 kr

Þessi dagbók, sem er byggð á „MD Notebook“, er fullkomin til að skrifa niður hugsanir og allt sem þarf að gera.
Hún er með einfaldri hönnun með mánaðarlegri áætlun í blokkum og línustrikuðum síðum. Bókin er með MD pappír sem hentar einstaklega vel fyrir notkun lindarpenna, og í raun hvaða penna sem er! Sumir viðskiptavinir okkar nota MD bækur sem skissubækur. 

Bókin er saumuð með þræði, sem gerir það að verkum að hún liggur alveg flöt.

Þessi útgáfa af MD PRODUCT er dagbók fyrir árið 2027. Fremst í bókinni er ársyfirliti, fyrir árið 2027 og 2028. Einnig eru mánuðir ársins 2027 settir snyrtilega upp rúðum. Restin af bókinni er með línustrikuðum blöðum. Bókin er línustrikuð og eins og í öllum MD PRODUCT bókum með línum er ein breiðari lína í miðju opnunnar sem má nota til þess að skipta niður opnunni eða blaðsíðunni. Vinsæll kostur er að nýta línustrikaðar MD bækur í dagbækur og setja einn dag inn í hvert hólf. 

MD Notebook Diary A6 2027
MD Notebook Diary A6 2027 Sale price3,290 kr