






MD Notebook Journal A5 Dot Grid
Einfaldleikinn ræður för í dásamlegri dagbókarlínu MD Paper
Minimalískar dagbækur fyrir þau sem njóta þess að skrifa á hágæða pappír. Japanski hönnunarfyrirtækið Midori hefur þróað dúnmjúkan pappír sem finna má í dagbókarlínunni MD Paper. Pappírinn hentar einstaklega vel fyrir penna og sérstaklega blekpenna, pappírinn tryggir að blekinu blæði hvorki á pappírnum né í gegnum pappírinn.
Bækurnar eru eins og minimalískar og hægt er. En með tímanum segir forsíðan þína sögu og eldist forsíðan með tímanum. Hægt er að fá sérstakar hlífar fyrir þau sem vilja halda bókunum sínum eins og hvítum og þegar þær fyrst voru keyptar en við mælum með að sleppa því og sjá hvernig bókin ferðast og litast með notkun. Hver bók á sína sögu.
Við eigum MD Paper bækurnar í tveimur pappírsgerðum, MD Paper (mjúku) sem henta einstaklega vel fyrir þá sem vilja skrifa og teikna með bleki, eða MD Paper Cotton bækurnar sem eru blandaðar með bómul sem gefur pappírnum hrjúfari áferð sem hentar einstaklega vel fyrir skissur.
Hentar vel sem dagbók, teiknibók eða sem Bullet Journal.
Blaðsíðurnar eru ekki merktar og er því hægt að merkja þær að vild.
Með bókinni fylgir límmiðaspjald með tölustöfum (1-12) og merkimiða. Bókin opnast flöt og er því þægilegt að skrifa í bókinni þrátt fyrir að hún sé þykk.
Bókin er úr smiðju MD Paper og er hönnuð og framleidd í Japan.
192 blaðsíður
Choose options






