Skip to content

Cart

Your cart is empty

Ohuhu Maui vatnslitatúss [120stk í pakka - brush&fineliner] svartar umbúðir

Sale price10.990 kr

120 tússlita sett frá Ohuhu. Þessir tússlitir eru tvíodda og eru með brush og fineliner oddum. Þetta sett er í svörtum umbúðum og því eru pennarnir sjálfir líka svartir, fyrir utan litamerktu lokin. 

Maui tússlitirnir eru vatnsgrunnaðir og eru því ekki jafn sterkir og spritttússarnir frá Ohuhu. Hægt er að nota Maui tússlitina til þess að skreyta dagbækur án þess að blæði í gegnum pappírinn (sem er ekki hægt með spritttússana). Þessir litir henta því þeim sem vilja bæði lita og nota í dagbækur eða á „venjulegum" pappír án þess að pappírinn skemmist. Maui tússarnir eru með fineliner oddi sem er 0.4mm og hentar því vel til þess að skrifa með!

Ohuhu tússpennarnir eru með hágæða bleki sem má blanda saman til að mynda fallegar litabreytingar. Segðu skilið við ójafnar blettir og óslétta litaáferð. Hágæða blekið blandast hnökralaust til að skapa falleg og fagmannleg listaverk sem henta bæði byrjendum og reyndum listamönnum.

Pennarnir eru með litamerktu loki og því er auðveldlega hægt að velja sér rétta litinn.

Ohuhu Maui vatnslitatúss [120stk í pakka - brush&fineliner] svartar umbúðir
Ohuhu Maui vatnslitatúss [120stk í pakka - brush&fineliner] svartar umbúðir Sale price10.990 kr