
PENCO Prime Timber skrúfblýantur - brúnn 2.0mm blý
Fallegur og vandaður skrúfblýantur sem minnir á klassískan tréblýant. Hann er úr sedrusviði (incense cedar) með látúnsfestingum og fer einstaklega vel í hendi.
Blýanturinn er hannaður af PENCO í samstarfi við japanska blýantsframleiðandann Kitaboshi og er framleiddur í Japan. Hann tekur 2 mm blý sem gefur mjúka og jafna línu og hentar því vel til að skissa, teikna og skrifa. Með fylgir eitt B-blý og lítill yddari sem er falinn í blýantinum sjálfum, byggður á hönnun frá 1960.
- Skrúfblýantur fyrir 2 mm blý
- Úr sedrusviði og látúni
- Eitt B-blý fylgir
- Innbyggður yddari
- Framleitt í Japan
Choose options

PENCO Prime Timber skrúfblýantur - brúnn 2.0mm blý
Sale price3,290 kr