Skip to content

Cart

Your cart is empty

Skipulagsbók 2027 – Hönnuð af Jasmín Guðrún Abu Libdeh

Sale price5,490 kr

Skipulagsbókin 2027 er hönnuð af Jasmín Guðrún Abu Libdeh, efnishöfundi og þáttastjórnanda hlaðvarpsins Orlofið. Hugmyndin að bókinni varð til út frá áhuga hennar á skipulagi og löngun til að skapa fallega og hagnýta bók sem nýtist í hversdeginum.

Markmiðið var að búa til skipulagsbók sem hjálpar fólki að fá betri yfirsýn yfir daglegt líf, halda utan um verkefni, venjur og markmið og gefa sér jafnframt tíma til að staldra við og meta það sem skiptir máli.

Í bókinni er að finna mánaðaryfirlit, tóma opnu, vikuyfirlit með plássi fyrir verkefni, þakklæti og venjur, sérstakar jólablaðsíðu og 20 auðar síður í lok bókarinnar sem hægt er að nýta eftir eigin þörfum.

Hugmyndin er að skapa bók sem sameinar skipulag og einfaldleika og hentar ólíkum lífsstíl. Dagbók sem hjálpar þér að halda utan um hversdaginn, eitt skipulagðara skref í einu.

Bókinn er prentuð á Íslandi. 

Skipulagsbók 2027 – Hönnuð af Jasmín Guðrún Abu Libdeh
Skipulagsbók 2027 – Hönnuð af Jasmín Guðrún Abu Libdeh Sale price5,490 kr