
Sóley og Fífa fara í berjamó
Höfundur bókarinnar er Þorbjörg Sandra Bakke
Frænkurnar Sóley og Fífa eru bestu vinkonur en búa í sitthvorum landshlutanum. Það er því alltaf mikil eftirvænting þegar þær hittast.
Í bókinni segir frá vináttu þeirra, fallegum samskiptum, fuglum, blómum, náttúrunni og auðvitað berjunum!
„Sóley og Fífa fara í berjamó“ er fyrsta sagan í nýjum bókaflokki um þessar lífsglöðu og forvitnu frænkur. Bókin er jafnframt frumraun Þorbjargar Söndru, sem skrifar bæði söguna og myndskreytir.
Bókin hentar öllum aldurshópum en er sérstaklega hugsuð fyrir börn á aldrinum 3-7 ára.
Þorbjörg Sandra notaði vörur úr Nakano til þess að myndskreyta þessa fallegu bók.
Choose options

Sóley og Fífa fara í berjamó
Sale price4.990 kr