





Standandi pennaveski (kaffihúsavinir) - Pon
Punilabo pennaveskin eru mjúk standandi pennaveski. Hægt er að ýta botninum til að pennaveskið standi á borði. Það komast u.þ.b. 8 pennar í hvert pennaveski (þessi útgáfa er aðeins minni en venjulega útgáfan af Punilabo dýrapennaveskjunum). Pennaveskið er gert úr sílikoni og því er auðvelt að þrífa það ef þess þarf.
Þessi pennaveski eru úr sérstakri línu þar sem þemaið er kaffihús og öll dýrin sem þangað mæta daglega.
Pon er japanskur þvottabjörn og er reglulegur viðskiptavinur á Punilabo kaffihúsinu. Hann er viðkunnanlegur og það líkar öllum vel við hann. Sagan segir að hann vinni rétt hjá kaffihúsinu. Pon elskar cream soda (gosdrykkur toppaður með ískúlu) og hefur drukkið þannig daglega í langan tíma.
Choose options





