Skip to content

Cart

Your cart is empty

TF Charm Train

Sale price2.690 kr

Traveler's Factory Charm eru gerð úr sama tin efni og litla málmsmellan efst á bókinni þinni þar sem bandið sem heldur TRAVELER’S bókinni er haldið saman. Hvert skraut er handgert í lítilli verksmiðju í Chiang Mai, Tælandi, og hefur einstaka rústika áferð. Hvert skraut hefur aðeins mismunandi litbrigði, svo engin tvö eru nákvæmlega eins.

 --

NAKANO er TRAVELER'S COMPANY Official Partner Shop og er þessi vara hluti af vörulínu sem eingöngu er seld í verslunum sem hlotið hafa þann stimpill! Það er unun að ferðast á milli landa og leita uppi ritfangaverslanir og við hjá Nakano erum einstakleg stolt að vera hluti af fjölskyldunni. Þessar verslanir sem eru um víð og dreif um allan heim eiga það sameiginlegt að vera einstakar í útliti, bjóða upp á framúrskarandi þjónustu og spegla eiganda búðarinnar. Við hvetjum þig því til þess að leggja land undir fót um finna aðrar  TRAVELER'S COMPANY Official Partner Shop verslanir. En hver verslun á alveg einstakan stimpil sem þú getur fengið í bókina þína! Í okkar verslun, jafnt sem öðrum slíkum, getur þú fundið gott samfélag af TRAVELER'S notebook notendum og notið þess að deila með öðrum ferðalöngum hvernig þú notar bókina þína! 

TRAVELER'S FACTORY var opnuð árið 2011 í Nakameguro, hjarta Tokyo borgar. Verslunin var hugsuð sem ævintýrastaður fyrir ferðalanga til að koma með bókina sína og hitta aðra sem deila sömu ástríðu fyrir bókinni sinni. En einnig sem staður þar sem hægt er að læra aðeins meira um heima og stækka sjóndeildarhringinn. 

Okkur hjá NAKANO hefur dreymt um að gerast TRAVELER'S COMPANY Official Partner Shop frá því við heimsóttum fyrst TRAVELER'S FACTORY búðina í Tokyo árið 2014. Það er því mikill heiður fyrir okkur að dreifa ævintýrunum og taka á móti ferðalöngum sem leita eftir nýjungum og öðrum fjársjóðum fyrir TRAVELER'S notebook bækurnar sínar! 

Við bjóðum alla ferðalanga velkomna til okkar að fá sérstakan stimpil! 

Vinsamlegast athugið að TRAVELER'S FACTORY vörurnar eru eingöngu seldar innanlands og verður því ekki hægt að senda vörurnar erlendis.

TF Charm Train
TF Charm Train Sale price2.690 kr