TRAVELER'S FACTORY - Refill Kraft Pink Passport Size
TRAVELER'S FACTORY Original Refill Passport er gert úr vönduðum bleikum kraft pappír. Hvernig væri að finna uppáhalds pennann sinn og skrifa niður nokkrar hugmyndir sem flugu í kollinn með morgunmatnum. Eða, kannski gætiru fengið þér þetta fallega innlegg til þess að lífga upp á skipulagið í bókinni þinni. Hvað sem þú velur, þá erum við viss um að þessi fallegi litur mun ná til þín og fá þig til þess að eiga notalega stund með bókinni þinni.
TRAVELER'S FACTORY Original Refill (Passport size) features pink kraft paper that you can use in a variety of ways. Pick up your favorite writing instrument to quickly jot down your grocery list, or maybe utilize some colored pencils to draw a picture with a unique colored background. However, you choose to use this refill, the soft pink color and kraft paper feel will encourage you to take a moment, and open your notebook to write down your thoughts.
NAKANO er TRAVELER'S COMPANY Official Partner Shop og er þessi vara hluti af vörulínu sem eingöngu er seldar í verslunum sem hlotið hafa þann stimpill! Það er unun að ferðast á milli landa og leita uppi ritfangaverslanir og við hjá Nakano erum einstakleg stolt að vera hluti af fjölskyldunni. Þessar verslanir sem eru um víð og dreif um allan heim eiga það sameiginlegt að vera einstakar í útliti, bjóða upp á framúrskarandi þjónustu og spegla eiganda búðarinnar. Við hvetjum þig því til þess að leggja land undir fót um finna aðrar TRAVELER'S COMPANY Official Partner Shop verslanir. En hver verslun á alveg einstakan stimpil sem þú getur fengið í bókina þína! Í okkar verslun, jafnt sem öðrum slíkum, getur þú fundið gott samfélag af TRAVELER'S notebook notendum og notið þess að deila með öðrum ferðalöngum hvernig þú notar bókina þína!
TRAVELER'S FACTORY var opnuð árið 2011 í Nakameguro, hjarta Tokyo borgar. Verslunin var hugsuð sem ævintýrastaður fyrir ferðalanga til að koma með bókina sína og hitta aðra sem deila sömu ástríðu fyrir bókinni sinni. En einnig sem staður þar sem hægt er að læra aðeins meira um heima og stækka sjóndeildarhringinn.
Okkur hjá NAKANO hefur dreymt um að gerast TRAVELER'S COMPANY Official Partner Shop frá því við heimsóttum fyrst TRAVELER'S FACTORY búðina í Tokyo árið 2014. Það er því mikill heiður fyrir okkur að dreifa ævintýrunum og taka á móti ferðalöngum sem leita eftir nýjungum og öðrum fjársjóðum fyrir TRAVELER'S notebook bækurnar sínar!
Við bjóðum alla ferðalanga velkomna til okkar að fá sérstakan stimpil!
Vinsamlegast athugið að TRAVELER'S FACTORY vörurnar eru eingöngu seldar innan Íslands.
Choose options