Skip to content

Cart

Your cart is empty

TF Sacoche Red

Sale price4,690 kr

TF Original Sacoche frá TRAVELER'S COMPANY er létt og handhæg axlartaska sem sækir innblástur í töskur sem langhjólreiðafólk notar til að geyma mat og vatn á ferðalögum. Taskan er tilvalin fyrir daglega notkun, stuttar borgarferðir og ferðalög og rúmar meðal annars TRAVELER'S minnisbók, nokkra penna, síma eða litla myndavél. Þessi rauða útgáfa er hönnuð í anda LOVE AND TRIP seríunnar sem kom út árið 2025. 

Taskan er framleidd í Chiang Mai í Taílandi, þaðan sem leðrið í TRAVELER'S hlífarnar er framleitt. Hún er úr bómull með náttúrulegri áferð og er með minni vasa sem rúmar TRAVELER'S minnisbók í Passport stærð. Taskan er tvíhliða og því hægt að snúa henni við eftir hentugleika, þannig að vasinn sé annaðhvort innan á töskunni eða utan á henni.

TF Sacoche Red
TF Sacoche Red Sale price4,690 kr