Skip to content

Cart

Your cart is empty

Tsundoku: The Japanese Art of Collecting Books

Sale price4.490 kr

Óður til þeirrar lágværu gleði að safna fleiri bókum en við getum mögulega lesið og elska þær allar jafn mikið...

Með hliðsjón af hinu áhrifamikla japanska hugtaki tsundoku sem var fyrst notað á Meiji-tímabilinu til að lýsa vaxandi stöflum af ólesnum bókum sem safnast í kringum dygga bókaorma, endurskilgreinir þessi innsæisfulla og skemmtilega bók það sem sumir kunna að sjá sem dót eða samviskubit, og sýnir fram á að um er að ræða djúpstæða og merkingarbæra lífspeki.

Frá áþreifanlegri ánægjunni af því að fletta í gegnum síður yfir í hina hljóðlátu athöfn að endurskipuleggja yfirfullar hillur, kannar Tsundoku sálfræðina, menninguna og ljóðrænuna á bak við þá ómótstæðilegu löngun að safna og elska bækur. Bókin býður upp á hugleiðingar um gleðina við að velja og kaupa bækur, uppreisnina gegn lestrarlistum, skapandi leiðir til að skipuleggja hillurnar, óbrjótanlegar afsakanir til að smygla enn einni bókinni heim, tækni til að muna það sem þú hefur lesið og hina seku – en dásamlegu – ánægju af því að endurlesa.

Ufram allt minnir þessi lífspeki okkur á að við þurfum ekki endilega að hafa lesið allar bækurnar sem við eigum til að elska þær skilyrðislaust. Burt með samviskubitið! Ólesnar bækur geta verið enn meira heillandi vegna þess að þær fara með okkur í mikið ævintýri og tala til okkar engu að síður – hvort sem við opnum þær eða höfum þær lokaðar. Við vitum að bækur eru smyrsl á sálina: það eitt að snerta bók, finna lyktina af henni eða glugga í hana lætur okkur líða betur samstundis.

Tsundoku: The Japanese Art of Collecting Books
Tsundoku: The Japanese Art of Collecting Books Sale price4.490 kr